|
Sumarnámskeið frjálsíþróttadeildar FH 2017
Hin vinsælu frjálsíþrótta- og leikjanámskeið á vegum frjálsíþróttadeildar FH verða haldin í sumar fyrir sex til tíu ára börn (fædd 2007-2011). Námskeiðin verða haldin á frjálsíþróttavellinum og í nýja frjálsíþróttahúsinu í Kaplakrika og eru í umsjón þjálfara og iðkenda frá Frjálsíþróttadeild FH. Námskeiðin verða sem hér segir: 1. námskeið 12.júní – 23.júní – 9:00-12:00 2. námskeið 12.júní – 23.júní – 13:00-16:00 3. námskeið 26.júní – 7.júlí – 13:00 -16:00 4. námskeið 31.júlí -11.ágúst – 9:00-12:00 5. námskeið 31. júlí -11.ágúst – 13:00-16:00 Boðið er upp á gæslu milli kl. 16 og 17. Skráning fer fram á www.fhfrjalsar.net og www.fh.is/frjalsar. Einnig er hægt að skrá börnin í Kaplakrika, við upphaf hvers námskeiðs. Á námskeiðunum kynnast börnin ýmsum greinum frjálsíþrótta og fara í íþróttatengda leiki. Lögð er áhersla á að börnin hafi með sér hollt nesti. Námskeiðsgjald er 10.000 kr. og 2.000 kr. afsláttur er veittur ef skráð er á fleiri en eitt námskeið. Systkinaafsláttur: Greitt er fullt gjald fyrir eitt barn en veittur er 3.000 króna afsláttur fyrir systkini þess. Nánari upplýsingar eru veittar á www.fhfrjalsar.net og www.fh.is/frjalsar. Upplýsingar veitir Arna Stefanía Guðmundsdóttir, netfang arnastefania@gmail.com og í síma 8439964 |